Dagskrá: Breytt brotamynstur og aukin áhætta Fyrirlesari er: Eiríkur Ronald Jósepsson, sérfræðingur í öryggismálum. Þróun brotastarfsemi, hvernig öryggisumhverfið hefur breyst á undanförnum árum og hvernig eðli brota og ógna hefur þróast.
Heildarlausnir i öryggismálum fyrir fyrirtæki Fyrirlesarar eru: Sigríður Ýr Aradóttir og Ómar Örn Jónsson, vörustjórar Securitas. Myndvarnir, neyðarhnappar, öryggi starfsfólks, vöktun og samhæfð viðbrögð stjórnstöðvar.
Frá boði til aðgerðar – viðbragðsferli lögreglu Fyrirlesari er: Gunnar Ingi Þorsteinsson, aðalvarðstjóri FMR. Lögreglan mun fjalla um mikilvægi réttra upplýsinga við atvik og hvernig varnir og skýringar fyrirtækja stuðla að skilvirkari viðbrögðum.
Við bjóðum upp á kaffi og girnilegan morgunverð í notalegu andrúmslofti. Vinsamlegast staðfestu þáttöku fyrir 24. febrúar með því að skrá þig hér fyrir neðan. Hlökkum til að sjá þig og byrja daginn á góðri samveru og áhugaverðum erindum. |